fimmtudagur, júlí 06, 2006

Ákæra á hendur George Bush eldri!

Nú hefur hópur af fólki, leitt af báráttumanninum Elías Davíðsyni lagt fram ákæru á hendur George H.W. Bush Fyrrv. Bandaríkjaforseta að tilefni komu hans til Íslands.

Hefur hópurinn krafist þess að Bush verði kyrrsettur hér á landi á meðan hlutdeild hans í stríðsglæpum verði rannsökuð.

Óskað hefur verið eftir því að íslensk stjórnvöld fari að alþjóðlegum skuldbindingum sem kveða á um að þess háttar stríðsglæpamenn verði leiddir fyrir dómstóla.

Ekki má búast við því að stjórnvöld muni taka nokkurn gaum að þessu máli og það er ekkert sem við, hinn almenni borgari getum gert í málinu.

Meira segja hafa Íslenskir fjölmiðlar lítið eða ekkert minnst á þessa ákæru á hendur Bush, heldur hafa þeir litið fram hjá málinu eins og þeim væri borgað fyrir það!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home