þriðjudagur, júlí 11, 2006

Fölsuð skilríki


Nú er ástandið orðið þannig í Írak að Súnní-múslimar eru farnir að fá sér fölsuð skilríki sem sýni þá sem Sjía-múslima, af ótta við hryðjuverkaárás.

Þá er oft talað um að Írakar séu á og barmi borgarasyrjaldar. Ég held að þessi frétt ásamt mörgum öðrum fréttum um árásir í Írak sýni það og sanni að borgarastrjöld sé löngu byrjuð og virðist alltaf ná toppnum hvern einasta dag...

Maður spyr sig hvað hernámsliðið sé eiginlega að gera þarna? Passa upp á öryggi borgaranna eða bara hráolíunnar?

maður spyr sig-----

laugardagur, júlí 08, 2006

Úrslitaleikurinn !!!

HM Úrslitaleikurinn er á morgun (Frakkland-Ítalía) Ég er að vinna þá ;( Ég verð að redda mér fríi,

= Markmið dagsins = Fá frí úr vinnunni á morgun !!!!

....

fimmtudagur, júlí 06, 2006

Stríð gegn hryðjuverkum - hvers vegna?

Proffessor Michel Chossudovsky (Kanada)

Mun halda fyrirlestur í Norræna húsinu, þriðjudaginn 11. júlí kl. 20:30

Erindið mun fjalla um stjórnmálalegar og strategískar hliðar bandarískra "stríðs" gegn hryðjuverkum, sem og um þá hættu á nýju stríði Bandaríkjamanna gegn Íran. Aðgangur er frjáls öllum sem vilja koma.

Að loknum fyrirlestri mun prof. Chossudovsky svara spurningum úr sal.


gagnauga.is

Ákæra á hendur George Bush eldri!

Nú hefur hópur af fólki, leitt af báráttumanninum Elías Davíðsyni lagt fram ákæru á hendur George H.W. Bush Fyrrv. Bandaríkjaforseta að tilefni komu hans til Íslands.

Hefur hópurinn krafist þess að Bush verði kyrrsettur hér á landi á meðan hlutdeild hans í stríðsglæpum verði rannsökuð.

Óskað hefur verið eftir því að íslensk stjórnvöld fari að alþjóðlegum skuldbindingum sem kveða á um að þess háttar stríðsglæpamenn verði leiddir fyrir dómstóla.

Ekki má búast við því að stjórnvöld muni taka nokkurn gaum að þessu máli og það er ekkert sem við, hinn almenni borgari getum gert í málinu.

Meira segja hafa Íslenskir fjölmiðlar lítið eða ekkert minnst á þessa ákæru á hendur Bush, heldur hafa þeir litið fram hjá málinu eins og þeim væri borgað fyrir það!