fimmtudagur, október 13, 2005

Veikindi!!!

Nú er komið að því að nöldra aðeins ;)

Ég er orðinn svona skemmtilega veikur og fékk því að fara fyrr heim úr vinnunni í dag.. jibby... er samt búinn að vera vinna veikur í tvo daga;(

En hvað er á döfinni...já ég er að fara í lyftingarpakkann um leið og ég losna við þessa helv. pest.
já heilbrigði og hamingja á næsta leiti, meira segja ætla ég að leggja djammskóna á hilluna, sko kallinn... Bara að maður fari eftir því;)

Annars er ekkert eitthvað svakalegt í fréttum, eyði mestum tíma í að vinna, þá svona 14 tíma á dag, verð að fara að fá svona 5 viku eins og þeir kalla það. mæta í vinnu og hætta kl. 5 . Það er svona lúxus sem ég öfunda samstarfsmenn mína af;(

Ég fór í bíó í gær með bónusfólki um land allt, því að það er víst einhver stefna hjá þeim að bjóða öllum í bónus, einu sinni í bíó á mánuði. Þannig æxluðust málin í gær að það var fullt í salinn sem var leigður, sem var að sýna Zorro... En í staðinn fengum við að velja um tvær aðrar myndir - "red eye" eða "The Decent" . Við völdum decent og viti menn, hún var frábær og að auki í A-sal.

Þannig að það er betra að mæta seint en fyrr..... Þefalt húrra fyrir því ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home