laugardagur, október 29, 2005

Síminn minn !!!!!!!!

Ég er alveg að farast hérna... Ég er ekki búinn að vera með síma í svona c.a. mánuð, og ég án síma er eins og blökkumaður án körfubolta og sakaskrá, nei nei bara smá djók;)

En ef þið hafið kannski verið að velta því fyrir ykkur af hverju ég hef ekkert haft samband við ykkur, þá er það að því að öll símanúmerin mín eru í símanum mínum og ég man ekki neitt einasta númer. Hey til hvers !!!

En ef þið viljið hafa samband, þá gerið það bara í gegnum netið, skilja eftir comment hérna eða bara á msn, sem er sigurdurben@hotmail.com og plís hafa samband, er að drepast úr leiðindum og ég get ekki hringt í neinn;(

föstudagur, október 28, 2005

Jólafílíngur

Djöfull hlakkar mig til jólanna maður, get ekki beðið, eftir að ég sá þennan yndislega jólasnjó falla í kvöld.

En jæja, nú er Brósi farinn á Stuðla vegna þess að hann vildi einfaldlega ekki fara í skólann. ;(
Ég verð að segja að ég sakna hans bara helv. mikið, meira segja "ef ég má brjótast úr karlmennskunni aðeins" þá táraðist ég soldið þegar ég var að kveðja hann;(

En Brósi virðist bara vera skemmta sér konunglega þarna..... búinn að setja í einhverja stelpu og ég veit ekki hvað og hvað... Ég verð að segja að ég gæti ekki verið stoltari af honum ;) P.I.M.P

Annars ganga lyftingarnar ágætlega og er sjálfur kraftlyftingarmaður Bónuss (Boris) að fara að kenna mér og Pálma "réttu" tökin, svo að við meiðum nú okkur ekki;)

Þangað til næst !76´rs

föstudagur, október 14, 2005

Heimsmálin

Hvað er að gerast með heiminn í dag spyr maður sig, eftir að hafa horft á fréttirnar undanfarið.
Svo virðist sem að ragnarök séu að byrja og allt að fara til fjandans, Fyrst kom Asía svo Ameríka og Pakistan í kjölfarið, Virðist sem svo að Guð taki ekki ekki tillit til pólítískrar afstöðu manna þar í löndum eins og einhver sagði " Bandaríkjamenn kölluðu þetta yfir sig, Allah er bara að refsa þeim." Kjaftæði...

Trúin er það eina sem aðskilur okkur mennina frá hvorum öðrum. Ef að fólk hefur ólíkar skoðanir á hlutunum, þá hljóta að vera hagsmuna árekstrar á milli þeirra fólks, sem í sumum tilvikum leiðir til stríðs og örbyggðar.

Vaknið !!! Þið sem haldið að allt sem þið trúið á sé réttast og allt hitt sé bara villimennska og hálvitaskapur, því að þeir sem þið dæmið, dæma ykkur alveg eins....

fimmtudagur, október 13, 2005

Veikindi!!!

Nú er komið að því að nöldra aðeins ;)

Ég er orðinn svona skemmtilega veikur og fékk því að fara fyrr heim úr vinnunni í dag.. jibby... er samt búinn að vera vinna veikur í tvo daga;(

En hvað er á döfinni...já ég er að fara í lyftingarpakkann um leið og ég losna við þessa helv. pest.
já heilbrigði og hamingja á næsta leiti, meira segja ætla ég að leggja djammskóna á hilluna, sko kallinn... Bara að maður fari eftir því;)

Annars er ekkert eitthvað svakalegt í fréttum, eyði mestum tíma í að vinna, þá svona 14 tíma á dag, verð að fara að fá svona 5 viku eins og þeir kalla það. mæta í vinnu og hætta kl. 5 . Það er svona lúxus sem ég öfunda samstarfsmenn mína af;(

Ég fór í bíó í gær með bónusfólki um land allt, því að það er víst einhver stefna hjá þeim að bjóða öllum í bónus, einu sinni í bíó á mánuði. Þannig æxluðust málin í gær að það var fullt í salinn sem var leigður, sem var að sýna Zorro... En í staðinn fengum við að velja um tvær aðrar myndir - "red eye" eða "The Decent" . Við völdum decent og viti menn, hún var frábær og að auki í A-sal.

Þannig að það er betra að mæta seint en fyrr..... Þefalt húrra fyrir því ;)

þriðjudagur, október 04, 2005

Bónus býður betur !!!

Þá er kallinn bara kominn aftur í Bónus, já stemningin sem fylgir 13 tíma vöktunum er engri lík (glott), það er svona ákveðin fílingur og vellíðan þegar maður kemur úr vinnunni, eins og maður hafi áorkað einhverju. Maður verður sáttur við sjálfan sig.

Já eins og kannski flestir vita, þá hef ég kannski drukkið soldið ótæpilega undanfarið ;/
Og ætlaði að skreppa á heilsuhælið Vog, til þess að taka smá til í hausnum á mér, en stirðlega hætti við í dag og sagði nei við plássinu sem mér hafði verið úthlutað :/:/:/ Ég veit, ég veit!

Málið er bara að ég er alltaf að hugsa um starfið og vinnuna. Get ekki hugsað mér að sleppa því...

Sumir eiga hunda, sumir eiga fjölskyldur og börn, en ég á vinnuna... Skilurðu?

Vá "góing trúnó óver hér"

En nú verð ég að kveðja og fara að sofa og.... bíddu bíddu... hvað er málið með alla trafíkina á blogginu mínu, er að horfa á þetta.... hva... kemur þetta frá þér Aggi?? .... Það er bara kúl.... veit þá að ég er ekki að tala við sjálfan mig.... ;)

Heyrumst!!!