dagurinn í dag átti að vera flutningsdagurinn minn, því að ég fæ ekki marga frí daga, eða um það bil fjóra.... byrjaði þannig að mamma fer strax um hádegisbil og segist ætla í hádegismat!!! ég náttla ranghvolfdi augunum og spyr hana hvort hún vissi ekki hvaða dagur væri í dag og hún svarar " jújú, á ég ekki bara koma eftir svona 1-2 tíma ?" ég var orðinn svo pirraður á þeim tímapunkti að ég minnti hana bara á það að þetta væri eini frídagurinn sem ég fengi og fór svo á klósettið og tók ásinn á málið...
kl. var orðinn 14:30 og ég hringdi í mömmu pirraður, þá var hún á leiðinni....
kl. 15:00 kemur mamma og keyrir niður eftir á hofsvallagötuna, stoppar bílinn og segir svo " ég kem svo og kíki á þig á eftir" Þarna var ég nærri því búinn að snappa en læt það kyrrt liggja og röfla eitthvað niðrandi við mömmu áður en ég skelli hurðinni og fer inn í íbúð..
kl. 17:53 mamma kemur aftur með ömmu aftur í bílnum og þau kíkja inn..... Ég byrja strax að böggast og benda á klukkuna, þessi dagur hefði getað verið skemmtilegri og ekki jafn tilgangslaus.....
En í staðinn ætlar kallinn hennar mömmu að flytja draslið fyrir mig ásamt mömmu, svona virkar þetta víst, ætli maður geti ekki bara verið þakklátur og hætt að nöldra, því það er ekki oft sem einhver aðstoðar mann við að flytja skal ég segja þér!