þriðjudagur, ágúst 30, 2005

Hvers vegna?

Píp píp píp... heyri ég daginn inn daginn út,.. Ég vinn í fjögurra gráðu hita, 12 tíma á dag hlustandi á ekkert nema viftuhljóðið í kælinum og pípið í kössunum þegar ég stíg út. Til hvers, spyr maður sig. .. Ég man að ég hætti að vinna sem flokkstjóri verkamanna vegna þess að ég þoldi ekki kuldann þegar vetur tók að nálgast,,, nú er ég að vinna í kælinum vegna þess að Aðstoðarverzlunarstjóranum er einum treyst til þess,,,,, en sú kaldhæðni,...

Ætli jákvæðnin sé að hverfa á brott og neikvæðnin að taka völdin, ég vona ekki, en til hvers að vona? hvenær verður maður ánægður? hvenær er komið nóg? af hverju ætti ég ekki að drekka mjöður þegar mér sýnist? eða hvað á ég að gera í staðinn?

Allt eru þetta spurningar sem hafa legið á mér og gera enn, hvað heldur ÞÚ?

1 Comments:

At 5:03 e.h., Blogger Arngrímur Vídalín said...

Þetta líður hjá. Fráhvörf? Þú þarft bara að finna þér eitthvað að gera utan vinnunnar.

 

Skrifa ummæli

<< Home