þriðjudagur, ágúst 30, 2005

Hvers vegna?

Píp píp píp... heyri ég daginn inn daginn út,.. Ég vinn í fjögurra gráðu hita, 12 tíma á dag hlustandi á ekkert nema viftuhljóðið í kælinum og pípið í kössunum þegar ég stíg út. Til hvers, spyr maður sig. .. Ég man að ég hætti að vinna sem flokkstjóri verkamanna vegna þess að ég þoldi ekki kuldann þegar vetur tók að nálgast,,, nú er ég að vinna í kælinum vegna þess að Aðstoðarverzlunarstjóranum er einum treyst til þess,,,,, en sú kaldhæðni,...

Ætli jákvæðnin sé að hverfa á brott og neikvæðnin að taka völdin, ég vona ekki, en til hvers að vona? hvenær verður maður ánægður? hvenær er komið nóg? af hverju ætti ég ekki að drekka mjöður þegar mér sýnist? eða hvað á ég að gera í staðinn?

Allt eru þetta spurningar sem hafa legið á mér og gera enn, hvað heldur ÞÚ?

föstudagur, ágúst 26, 2005

Hjálp !!!

Hjálp helgin er kominn, veit ekkert hvað ég á að gera sem endar ekki í djammi... einhveeeer.....

sunnudagur, ágúst 21, 2005

Menningarnótt

Vá, ég sit og blogga hálf ellefu að morgni til þegar ég væri venjulega út úr heiminum á þessum tímapunkti, ég fór ekki einu sinni í bæinn, kannski að einhverskonar "chill" tímabil sé í vændum, svei mér þá. Jæja nóg af þrasi, best að drífa sig í vinnuna, má ekki láta starfsfólkið bíða fyrir utan búðina endalaust......

föstudagur, ágúst 19, 2005

það var mikið..

Nú er ég loksins orðinn Aðstoðarverzlunarstjóri, bara hjá krónunni eftir að þeir sáu svo eftir mér að þeir hringdu í mig og GRÁTBÁÐU mig að koma aftur í krónuna með meðfylgjandi stöðuhækkun..... hahahahaha........ lalalala

mánudagur, ágúst 08, 2005

Ég á leiðinni á djammið....... soldið mikið um það nýlega....

Ég á djamminu......

mánudagur, ágúst 01, 2005

WHAT IF ?

Var þetta rosaleg helgi eða hvað....... einhvern veginn er maður búinn að vera í endalausri hringekkju síðan í byrjun júlí eða síðan ég hætti með Guðnýu.... Kan... nei ekki kannski, heldur "tími" á að taka því rólega héðan í frá ! dem mar... hvað gerðist eiginlega !!!! Er þetta einhverskonar prufuforrit sem ég hef verið settur inn í af manneskunni sem bjó til forritið sem ég bý í eða er þetta bara það sem hefur þegar verið ákveðið, til þess að þjóna æðri tilgangi ? Ef þú veist svarið endilega láttu mig vita , því að , því meira sem ég tel mig vita , því lengra er ég frá hinu rétta..