Jeij. kominn með nýja tölvu!!!!!
Ég var að fá mér nýja tölvu!!!
Sniiiiiiild!!!!
Nenni ekki að segja ykkur neinar fréttir núna!
kv. Siggi
(þýðing æskunnar) = sá sem er reynslulaus og algjör byrjandi.
Ég var að fá mér nýja tölvu!!!
Þá er mar bara kominn með allt heila klabbið net, íbúð og verzlunarstjóra stöðuna sem maður var alltaf að bíða eftir :)

HM Úrslitaleikurinn er á morgun (Frakkland-Ítalía) Ég er að vinna þá ;( Ég verð að redda mér fríi,
Proffessor Michel Chossudovsky (Kanada)
Nú hefur hópur af fólki, leitt af báráttumanninum Elías Davíðsyni lagt fram ákæru á hendur George H.W. Bush Fyrrv. Bandaríkjaforseta að tilefni komu hans til Íslands.
Hey kallinn bara kominn með nýja vinnu og alles..
Halló krakkar, ég er í smá vandræðum hérna... Mig dauðvantar herbergi eða litla íbúð til leigu, er heimilislaus í augnablikinu ... tek hverju sem er ... P.S. ég á pening...
Bezt að fara bursta jólasnjóinn af jakkfötunum og geri sig reddí fyrir áramótin, ó já, þá verður djammað og ég skal lofa að setja fullt af myndum hérna á síðuna, en núna ætla ég að fara sofa, þar sem að ég er algjörlega búinn að snúa sólarhringnum við og svaf ekki nema svona einn tíma í nótt:/
Já, við bónusstrákar höfum stofnað okkar eigin blogg, vona að það verði jafn gott og mitt;)
já nú er kallinn soldið slappur, var eiginlega bara að vakna, vá kl. er hálf sjö....
Ég er alveg að farast hérna... Ég er ekki búinn að vera með síma í svona c.a. mánuð, og ég án síma er eins og blökkumaður án körfubolta og sakaskrá, nei nei bara smá djók;)
Djöfull hlakkar mig til jólanna maður, get ekki beðið, eftir að ég sá þennan yndislega jólasnjó falla í kvöld.
Hvað er að gerast með heiminn í dag spyr maður sig, eftir að hafa horft á fréttirnar undanfarið.
Nú er komið að því að nöldra aðeins ;)
Þá er kallinn bara kominn aftur í Bónus, já stemningin sem fylgir 13 tíma vöktunum er engri lík (glott), það er svona ákveðin fílingur og vellíðan þegar maður kemur úr vinnunni, eins og maður hafi áorkað einhverju. Maður verður sáttur við sjálfan sig.
allt í klessu hérna heima eins og vanalega, (fyrir ykkur sem vitið ekki, þá er ég heima hjá mútter þessa dagana). Mamma í einhverju geðvonsku kasti og var að hlaupa út með skellum;(
dagurinn í dag átti að vera flutningsdagurinn minn, því að ég fæ ekki marga frí daga, eða um það bil fjóra.... byrjaði þannig að mamma fer strax um hádegisbil og segist ætla í hádegismat!!! ég náttla ranghvolfdi augunum og spyr hana hvort hún vissi ekki hvaða dagur væri í dag og hún svarar " jújú, á ég ekki bara koma eftir svona 1-2 tíma ?" ég var orðinn svo pirraður á þeim tímapunkti að ég minnti hana bara á það að þetta væri eini frídagurinn sem ég fengi og fór svo á klósettið og tók ásinn á málið...
Vá hvað ég sakna að sofa, ég hef alltaf haft það í huga, síðan um helgina að fá að sofa en einhvern vegin tekst mér alltaf að klúðra því, nú skal það takast og ekki orð um það meir..... og já ég var að kynnast þessari huggulegu stelpu um daginn, sem ég reyndar hef þekkt í smá tíma fyrir. Gæti verið að (Siggi) kallinn sé að fara að leggjast í helgan stein?
jæja bara laugardagur kominn og allt í hinu besta, bara að ég væri með loftnet sem virkaði í sjónvarpið!!!! VERÐ AÐ SJÁ FRÉTTIRNAR, ER SVO MIKILL FRÉTTA FÍKILL .........
Ég fór í bíó, í kvöld og sá þá skemmtilegu mynd #Land of the dead# Þótt að myndin hljóti nú engin óskarsverðlaun, þá fannst mér hún bara þokkalega góð afþreying. Gæti verið af því að ég hef ekki farið í kvikmyndahús í nokkurn tíma. Gef henni 3 stjörnur af fimm, fyrir góða skemmtun. ;)
nú er komið að því að ég er ekki búinn að fá svo mikið borgað frá Bónus og náttúrulega ekkert frá kaupás, því að þeir hirða alltaf tvær vikur af manni í byrjun.
Jeij , kl. er að nálgast hálf sjö. Já það vill svo skemmtilega til að ég og verzlunarstjórinn þurftum að vakna klukkutíma fyrr í dag, út af talningu í kæli og á sígarerettum....ég elska vinnuna mína;)
Píp píp píp... heyri ég daginn inn daginn út,.. Ég vinn í fjögurra gráðu hita, 12 tíma á dag hlustandi á ekkert nema viftuhljóðið í kælinum og pípið í kössunum þegar ég stíg út. Til hvers, spyr maður sig. .. Ég man að ég hætti að vinna sem flokkstjóri verkamanna vegna þess að ég þoldi ekki kuldann þegar vetur tók að nálgast,,, nú er ég að vinna í kælinum vegna þess að Aðstoðarverzlunarstjóranum er einum treyst til þess,,,,, en sú kaldhæðni,...
Hjálp helgin er kominn, veit ekkert hvað ég á að gera sem endar ekki í djammi... einhveeeer.....
Vá, ég sit og blogga hálf ellefu að morgni til þegar ég væri venjulega út úr heiminum á þessum tímapunkti, ég fór ekki einu sinni í bæinn, kannski að einhverskonar "chill" tímabil sé í vændum, svei mér þá. Jæja nóg af þrasi, best að drífa sig í vinnuna, má ekki láta starfsfólkið bíða fyrir utan búðina endalaust......
Nú er ég loksins orðinn Aðstoðarverzlunarstjóri, bara hjá krónunni eftir að þeir sáu svo eftir mér að þeir hringdu í mig og GRÁTBÁÐU mig að koma aftur í krónuna með meðfylgjandi stöðuhækkun..... hahahahaha........ lalalala
Var þetta rosaleg helgi eða hvað....... einhvern veginn er maður búinn að vera í endalausri hringekkju síðan í byrjun júlí eða síðan ég hætti með Guðnýu.... Kan... nei ekki kannski, heldur "tími" á að taka því rólega héðan í frá ! dem mar... hvað gerðist eiginlega !!!! Er þetta einhverskonar prufuforrit sem ég hef verið settur inn í af manneskunni sem bjó til forritið sem ég bý í eða er þetta bara það sem hefur þegar verið ákveðið, til þess að þjóna æðri tilgangi ? Ef þú veist svarið endilega láttu mig vita , því að , því meira sem ég tel mig vita , því lengra er ég frá hinu rétta..
"Hlýjasti dagur sumarsins" er skrifað á mbl.is , mér til mikillar óánægju, þar sem ég er veikur heima ....... En ég ætla ekki að örvænta, því að það kemur dagur á eftir þessum og það er eins gott að hann slái öll hlýinda met.......
annar dagur í vinnunni er senn að hefjast og ég þarf að leggja af stað mar..................
ég keypti mér kornflakes og fékk svona skemmtilegan "lightsaber maze inside"
Er það ég eða er Fólk með Sirry mesti kellingaþáttur í heimi???
Nú er það rosalegt mar.. Verzlunarstjórinn er veikur og aðstoðarverzlunarstjórinn vinnur ekki um helgar, þannig er ég einn eftir, til þess að sjá um búðina og hefur tekist helv. vel hingað til ;)
gott að geta fengið smá brake úr vinnunni, þar sem það var lítið að gera, fékk ég skemmtlegt þriggja tíma leyfi, hvað á mar nú að gera.............
Er kominn með allan gallann, Leddari, klipping, buxur og peysa úr mótor..... gæti ekki ekki eytt meiri pening á minni tíma...... eða kannski ....... en þetta var alveg rosalegt........ ;)
Shiiiit !!! ég er eins og blettatígur ... ég var að láta kærustuna mína lita á mér hárið í gær , svona brúnt og flott og fékk svona strípur ofaní sem hefði betur verið ógert því nú er ég eins og blettatígur með strípur;)
Nú er kallinn að fara í kringluna að fara að verzla föt og fl.
Jæja á maður ekki að fara taka þetta bílpróf í gegn, ég held það nú!
http://www.rotten.com/library/bio/entertainers/music/frank-sinatra/frank-sinatra-mugshot.jpg
nú er kallinn bara kominn með playstation 2 , ég sé ekki eftir neinu......... nú er ég næstum kominn með fullgræjað heimili......
Á sjöunda daginn hvíldist ég , eða allavega þangað til að ég uppgötvaði að fjármálastaða mín var ekki svo sterk og mun í framtíðinni , frá og með þarnæsta sunnudegi, vinna ALLA sunnudaga, takk fyrir..........
dæmi um það hvað ég elska vinnuna mína mikið þá var ég spurður hvort ég gæti ekki reddað nýrri tónlist til þess lífga upp á stemninguna, ég fór heim í hádeginu eins og vanalega og skrifaði ljúfa tóna með Frank Sinatra, lagið mr. sandman ofl skemmtilegt og viti menn , fólk tók bara helv. vel í það......
Halló halló halló sagði ég einhvern tímann
Vá hvílíkur munaður að vera kominn með þetta svokalla Internet.. WorldWideWeb